Herramenn poppa upp!

Pop-up rakarastofa á Dönskum dögum

Laugardaginn 17. ágúst

10:00 - 17:00

Panta tíma

Herramenn Rakarastofa verður með pop-up

Laugardaginn 17. ágúst mæta snillingarnir frá Herramönnum og koma sér vel fyrir á Sjávarborg. Tilvalið fyrir skeggprúða hólmara að láta sjá sig, fá sér drykk og láta stjana við sig. Vörur frá Mr. Bear Family verða einnig á svæðinu.

Áralöng reynsla

Rakarastofan Herramenn var stofnuð 9. desember árið 1961 af Torfa Guðbjörnssyni hárskera og rakarameistara. Frá fyrsta degi hefur rakarastofan verið í hjarta Kópavogs í Hamraborg.


Árið 1978 bættist önnur kynslóð við þegar Gauti, sonur Torfa, fylgdi í fótspor föður síns. Gauti lauk námi árið 1981 og hefur unnið alla tíð síðan á stofunni. Þriðja kynslóðin bættist við árið 2003 þegar sonur Gauta, Andri Týr, byrjaði að nema fagið. Í eitt ár unnu þessar þrjár kynslóðir saman á rakarastofunni en Torfi lést árið 2004. 


Rakarastofan Herramenn sérhæfir sig í snyrtingu fyrir herramenn á öllum aldri; hár, skegg, rakstur og hárþvottur.


A poster with a picture of food and the words konungegar